Í veitingasal á neðri hæð er hægt að fá sér næringu og láta fara vel um sig. Salurinn tekur allt að 50 manns, en mikilvægt er að panta fyrir fram ef ætlunin er að koma með stóra hópa í mat.
Boðið verður upp á hágæða kaffi, tertur og annað meðlæti. Alla daga verður í boðið að fá sér dýrindis súpu ásamt nýbökuðu brauði.
Við leggjum mikið upp úr því að bjóða hráefni úr nágrenninu, vinnum alla okkar rétti sjálf og heiðurssess skipa hinir þekktu Dalaostar, sem framleiddir eru í Búðardal..